fimmtudagur, september 08, 2005

Nóg að gera...

Þessa dagana er nóg að gera og því lítill tími til að blogga mikið.

Helstu fréttir síðustu vikna eru þær að við Inga Jóna búum nú saman í íbúðinni hennar við Miklubraut 70, hurðin við hliðina á hárgreiðslustofunni við hliðina á blómabúðinni á horni Miklubrautar og Hringbrautar. Klárlega miðdepill alheimsins enda leitun að stað sem fleiri kjósa að leggja leið sína um á hverjum degi.

Aðrar fréttur eru þær að vikuna 21. - 28. ágúst gekk ég með Útivist frá Sveinstindi við Langasjó suður Eldgjá (gist í Skælingum, Álftavatnakrók og Strút) að Mýrdalsjökli, áfram í Emstrur (Botna) og enduðum loks í heljarpartýi í afmælisveislu Útivistar í Básum. Algerlega frábær 108 km löng ferð sem verður lengi í minnum höfð.

Nóg að gera í vinnunni. Oracle ráðstefna á morgun sem endar með djammi á Grand hótel ásamt hinum tölvunördunum. Þessa dagana erum við að uppfæra úr Oracle Discoverer í Oracle Discoverer Plus auk þess sem við erum í óða önn að tengja saman upplýsingar úr hinum ýmsu upplýsingakerfum fyrirtækisins. Þá erum við að vinna í því að koma starfslýsingum, starfsmannasamtölum, handleiðslu og mörgu öðru inn í mannauðskerfið. Mjög spennandi og endalaus verkefni framundan.

Er byrjaður í fullu námi í Söngskólanum í Reykjavík. Hörku vinna og miklar kröfur sem innihalda tvö skipti í viku með söngkennara, einu sinni í viku með undirleikara, klukkutíma á viku í tónheyrn, klukkutíma í tónfræði og klukkutími í það sem kallað er opin grunndeild. Þar er blandað saman tónlistarsögu, leiklist auk þess sem við syngjum eitthvað hvert fyrir annað og fáum feedback á frammistöðuna. Svo þarf ég að æfa mig heima. Hefur nú aldrei verið mín sterka hlið.

Þá er ég að vinna í verkefninu Ljóð í sjóð með MND félaginu. Þar erum við að safna ljóðum, málverkum og tónlist sem gefin verður út í glæsilegri ljóðabók sem einnig mun innihalda myndir af málverkunum. Með henni mun svo fylgja diskur með tónlist og upplestri ljóða. Fjölmargir af þekktustu ljóðskáldum, myndlistar- og tónlistarmönnum þjóðarinnar munu taka þátt í því verkefni og er stefnt að útgáfu næsta vor í kringum sumardaginn fyrst. Allir listamennirnir gefa MND-félaginu vinnu sína til rannsókna á þessum svakalega sjúkdóm.

Er svo auðvitað formaður Skátakórsins og einnig í kór Orkuveitu Reykjavíkur. Það þýðir að ég mun syngja í skólanum á mánudögum, Skátakórnum á þriðjudögum, skólanum og með ORkórnum á miðvikudögum og í skólanum á fimmtudögum. Þetta verður því söngmikill vetur í meira lagi.


Á laugardaginn næsta ætlum við að skella okkur á "Hörður Torfa lengi lifi" sem eru heiðurstónleikar í Borgarleikhúsinu tilefni af 60 ára afmæli Harðar þar sem hinir ýmsu tónlistarmenn munu taka lögin hans. Um næstu helgi á eftir förum við síðan á hausttónleikana hans sjálfs auk þess sem ég fer á Úlfljótsvatn með RAP-hópi Bandalags íslenskra skáta en við erum hópur sem erum að vinna að endurskoðun skátadagskrárinnar, þ.e. þess starfs sem skátarnir okkar fara í gegnum á sínum skátaferli. Þar er ég með góðu og öflugu fólki og erum við meðal annars á leið til Danmerkur í nóvember. Stefni að því að kíkja við hjá Kristófer í Álaborg í leiðinni.

Um þar næstu helgi ætlar stjórn STOR austur í sumarbústað, þrífa bústaðina, ganga frá eftir sumarið og fá sér loks öl og gott að borða á eftir. Er þar eldhress hópur á ferð. Um mánaðarmótin verður síðan heilsað upp á tengdó á Akureyri í fyrsta skiptið. Verður örugglega mjög skemmtilegt því mér hefur heyrst þetta vera hið skemmtilegasta fólk.

Já, lífið er náttúrlega bara að komast á full-swing eftir sumarið. Svo þarf maður að reyna að vera duglegur að læra heima og reyna að koma sér í ræktina öðru hverju svo maður hafi nú þrek til að gera þetta allt saman.

Já, best að fara að koma sér heim strauja jakkaföt og skyrtur fyrir morgundaginn og...úúúú það verður ljúft að koma til yndislegu konunnar sinnar.

Já lífið er ljúft...

5 Comments:

At 8.9.2005, 23:38, Anonymous Nafnlaus said...

úfff... information overload!

Allavega - það er þá gaman að segja frá því að ég keyri framhjá heimili þínu um það bil 4-6 sinnum á dag. Jamm jamm... ætli maður verði ekki að fara að hitta þessa konu þína?

 
At 9.9.2005, 18:19, Anonymous Nafnlaus said...

hmm... já ég er nú sammála fyrra commenti.... vissi ekki einu sinni að það væri komin kona;o) til lukku með það... kanski way overdue að segja þetta??! kv. Sonja

 
At 13.9.2005, 14:57, Blogger Sigurður Viktor Úlfarsson said...

Já takk fyrir það!

Overload er einmitt orð sem lýsir svolítið þessum vikum en það er svosem ekkert nýtt.

Já, við þurfum endilega að fara að hittast.

...og Sonja...velkomin heim frá USAinu...klárlega reyndar way overdue að segja það núna en betra seint en aldrei.

 
At 15.9.2005, 13:34, Anonymous Nafnlaus said...

blessaður Siggi... mig langar svoldið að forvitnast hjá þér... veistu hvort OR sé að fara veita styrkinn til konu í tækninámi.... ég sótti um og er að springa úr forvitni... en svo er kanski bara búið að veita hann?? kv. Sonja

 
At 22.9.2005, 18:10, Anonymous Nafnlaus said...

Never mind... ÉG FÉKK STYRKINN;O)

 

Skrifa ummæli

<< Home